Frönskukeppni grunn- og framhaldsskóla verður haldin í mars.
Keppnin er haldin í samvinnu Félags frönskukennara á Íslandi, Sendiráðs Frakklands á Íslandi og Alliance française á Íslandi. Keppnin er tvískipt, annars vegar fyrir grunnskólanema og hins vegar fyrir framhaldsskólanema. Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta til þriðja sæti á báðum skólastigum.
Allir skólar þar sem franska er kennd geta tekið þátt í keppninni. Myndbandið getur verið annaðhvort einstaklingsverkefni eða hópverkefni (tveir nemendur saman hámark).
Hugmyndin í ár er að tengja keppnina við átakið „Franska er málið“ og nemendur eiga því að útbúa stutt myndband sem mætti dreifa á samfélagsmiðlum til að „auglýsa“ frönsku með efni sem höfðar til ungmenna.
Þema keppninnar í ár er „Fjör í frönsku“. Myndbandið á að vera á frönsku með íslenskum texta til þess að geta dreift vinningsmyndböndunum á samfélagsmiðlum.
